Fotbolti.net
08.08.26 - 14:00
Brynjar Ingi Erluson

Þorleifur aftur í Breiðablik (Staðfest)

Þorleifur er kominn aftur í Blika

Þorleifur er kominn aftur í Blika

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Breiðablik hefur sótt sóknarmanninn Þorleif Úlfarsson aftur til félagsins frá bandaríska USL-deildarfélaginu Loudoun United.
Fótbolti.net greindi frá því undir lok síðasta mánaðar að Blikar hefðu lagt fram nokkur tilboð í Þorleif en Loudoun hafnað þeim öllum.

Viðræðurnar héldu þó áfram og hafa félögin nú náð samkomulagi. Gengið hefur verið frá félagaskiptunum og er Þorleifur kominn með leikheimild fyrir leik Breiðabliks gegn Val á morgun.

Þorleifur er 25 ára gamall og uppalinn hjá Breiðabliki en hefur einnig leikið með Augnabliki og Víkingi Ó.

Hann fór á kostum í bandaríska háskólaboltanum með Duke-skólanum og fékk í kjölfarið sérstakan Generation Adidas-samning áður en hann var valinn af Houston Dynamo í nýliðavali MLS-deildarinnar.

Þorleifur lék tvö tímabil með Houston og skoraði sjö mörk í 49 deildarleikjum. Þaðan fór hann til Debrecen í Ungverjalandi en meiðsli settu strik í reikninginn og sneri hann aftur heim í Breiðablik á síðasta ári.

Um áramótin hélt Þorleifur aftur til Bandaríkjanna og skrifaði undir tveggja ára samning við Loudoun. Hann hefur raðað inn mörkum á tímabilinu og er kominn með átta mörk og tvær stoðsendingar í deildinni.

Framherjinn á sex keppnisleiki að baki með Blikum, en á enn eftir að skora sitt fyrsta mark.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.