08.08.26 - 17:02
Brynjar Ingi Erluson
Tveir meiddust þegar Man Utd gerði jafntefli við Evrópumeistarana

Mbeumo skoraði annan leikinn í röð

Mynd: EPA

Mason Mount fór meiddur af velli eftir 20 mínútur

Mynd: EPA

Mbeumo skoraði annan leikinn í röð

Mynd: EPA
Manchester United United gerði 1-1 jafntefli við Evrópumeistara Paris Saint-Germain á Gamla Ullevi-leikvanginum í Gautaborg í Svíþjóð í dag.
Senegalski vængmaðurinn Ibrahim Mbaye kom PSG yfir eftir tæpar tvær mínútur.
Dro Fernandez sendi frábæran bolta fyrir frá vinstri og Mbaye kláraði færið af öryggi. Hann er aðeins 18 ára gamall og hefur verið sterklega orðaður við Liverpool undanfarna daga.
Bryan Mbeumo jafnaði metin þegar rúmur hálftími var liðinn. Amad Diallo fann hann vinstra megin í teignum og Mbeumo lagði boltann niðri í hægra hornið.
Þetta var annar æfingaleikurinn í röð þar sem Mbeumo kemst á blað.
United varð fyrir áfalli á 20. mínútu þegar Mason Mount þurfti að fara af velli vegna meiðsla. Tom Heaton meiddist einnig í byrjun síðari hálfleiks en markvörðurinn fann þá fyrir aftan í læri og gat ekki haldið áfram.
Manchester United á tvo æfingaleiki eftir, gegn Leeds og AC Milan, áður en tímabilið hefst 22. ágúst.
Brentford vann á meðan 4-2 sigur á Rennes frá Frakklandi. Igor Thiago, Ethan Pinnock, Dango Ouattara og Callum Wilson skoruðu mörk Brentford.
Everton tapaði hins vegar 3-1 fyrir Stuttgart. Thierno Barry skoraði eina mark Everton þegar tuttugu mínútur voru eftir.