Fotbolti.net
08.09.20 - 08:44
Magnús Már Einarsson

Lukaku spilar ekki gegn Íslandi - Batshuayi frammi

Michy Batshuayi

Michy Batshuayi

Canon

Mynd: Getty Images

Icelandair
Romelu Lukaku, framherji Inter, verður ekki með belgíska landsliðinu gegn Íslandi í Þjóðadeildinni í kvöld.

Lukaku fær hvíld í leiknum í kvöld en Michy Batshuayi, framherji Chelsea, mun byrja frammi. Batshuayi skoraði bæði mörk Belga í 2-0 sigri gegn Íslandi í Þjóðadeildinni árið 2018.
„Þetta er tækifæri fyrir Michy," sagði Roberto Martinez, þjálfari Belga, á fréttamannafundi í gær.

Kevin de Bruyne var ekki með í 2-0 sigrinum á Dönum þar sem unnusta hans var að eignast barn. De Bruyne verður með í kvöld.

Allir leikmenn belgíska landsliðsins eru á leið í kórónaveirupróf eftir að Brandon Mechele, varnarmaður Club Brugge, greindist með veiruna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.