Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   fim 08. september 2022 11:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Karius að ganga í raðir Newcastle
Þýski markvörðurinn Loris Karius er við það að ganga í raðir enska úrvalsdeildarfélagsins Newcastle.

Karius hefur verið án félags frá því hann yfirgaf Liverpool í sumar. Félagaskiptaglugginn er lokaður en hann getur samið við félag þar sem hann er ekki með samning neins staðar.

Karl Darlow er meiddur og kemur Karius til með að leysa hann af hólmi. Hann verður varamarkvörður fyrir Nick Pope.

Karius spilaði ekkert fyrir Liverpool síðan hann varði mark liðsins í úrslitaleik Meistaradeildarinnar gegn Real Madrid árið 2018. Í þeim leik gerði hann tvö mistök sem kostuðu mark og Liverpool tapaði 3-1. Hann er þekktastur fyrir þann leik.

Hann er á leið í læknisskoðun og mun svo skrifa undir stuttan samning við Newcastle.
Athugasemdir
banner