08.09.26 - 11:30
Elvar Geir Magnússon
Bodö/Glimt tilnefnt sem félag ársins á Ballon d'Or hátíðinni

Bodö/Glimt.

Mynd: EPA

Luis de la Fuente er tilnefndur sem þjálfari ársins.

Mynd: EPA

Bodö/Glimt.

Mynd: EPA
Í dag verða tilnefningar til Ballon d'Or gullboltans tilkynntar en samkvæmt veðbönkum er Harry Kane líklegastur til að hljóta verðlaunin í ár. Lamine Yamal, Kylian Mbappe og Rodri koma þar á eftir.
Við sama tækifæri verða fleiri verðlaun afhent, þar á meðal er fótboltafélag ársins. Meðal félaga sem eru tilnefnd sem félag ársins er Bodö/Glimt í Noregi sem hefur heldur betur gert áhugaverða hluti undanfarin ár.
Þá verður þjálfari ársins valinn en hér má sjá tilnefningarnar í þessum flokkum:

TENGT EFNI
Myndband: Þorskurinn númer eitt og svo kemur Bodö/Glimt
Tilnefningar sem félag ársins í karlaflokki: Arsenal, Bayern München, Bodö/Glimt, Flamengo og Paris St-Germain.
Tilnefningar sem félag ársins í kvennaflokki: Barcelona, Bayern München, Club America, Manchester City og Lyon.
Tilnefningar sem þjálfari ársins í karlaflokki: Mikel Arteta (Arsenal). Luis de la Fuente (Spánn), Unai Emery (Aston Villa), Vincent Kompany (Bayern München) og Luis Enrique (Paris St-Germain),
Tilnefningar sem þjálfari ársins í kvennaflokki: Jonatan Giraldez (Lyon), Andree Jeglertz (Manchester City), Nils Nielsen (Japan), Pere Romeu (Barcelona) Elena Sadiku (Celtic/ BK Hacken).