Fotbolti.net
08.10.26 - 12:10
Elvar Geir Magnússon

Ný og glæsileg Kop stúka Wrexham farin að taka á sig mynd

Kop stúkan er farin að taka á sig mynd.

Kop stúkan er farin að taka á sig mynd.

Canon

Mynd: Wrexham

Nýja Kop stúkan bak við annað markið á heimavelli Wrexham, Racecourse Ground, er farin að taka á sig mynd og rís af miklum hraða.

Gamla Kop stúkan stóð tóm og í dvala í mörg ár og var áþreifanleg minning um þá erfiðu tíma sem velska félagið gekk í gegnum. Söguna þekkja áhorfendur 'Welcome to Wrexham' sjónvarpsþáttanna.

Leikararnir Ryan Reynolds og Rob McElhenney eiga Wrexham og liðið oft kallað Hollywoold-liðið. Þeir hafa mikinn metnað og bygging nýju stúkunnar er staðfesting á því.
Wrexham hefur keypt barinn heimsfræga
TENGT EFNI

Wrexham hefur keypt barinn heimsfræga

Nýja stúkan verður með 7.500 sætum og mun völlurinn sjálfur taka meira en 18 þúsund áhorfendur þegar hún er klár. Í stúkunni verða meðal annars búningsklefar, fjölmiðlaaðstaða og VIP salur.

Wrexham hefur orðið vinsæll viðkomustaður ferðamanna og mikilvægt fyrir félagið að ná að anna eftirspurn eftir miðum, bæði frá erlendum ferðamönnum og heimafólki.

Wrexham var nálægt því að komast í umspil Championship-deildarinnar á síðasta tímabili en draumur Reynolds og McElhenney er að koma Wrexham alla leið upp í ensku úrvalsdeildina.

The Turf, barinn heimsfrægi sem er fyrir utan leikvanginn.

The Turf, barinn heimsfrægi sem er fyrir utan leikvanginn.

Canon

Mynd: EPA

Mynd frá nóvember 2023 þegar búið var að rífa gömlu Kop stúkuna.

Mynd frá nóvember 2023 þegar búið var að rífa gömlu Kop stúkuna.

Canon

Mynd: EPA

Tölvuteikning af nýju Kop stúkunni.

Tölvuteikning af nýju Kop stúkunni.

Canon

Mynd: Wrexham

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.