Fotbolti.net
08.10.26 - 10:19
Kári Snorrason

Hvað er í húfi í baráttunni um annað sætið?

Fram og KR eigast við á laugardaginn.

Fram og KR eigast við á laugardaginn.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Fram tekur á móti KR í Úlfarsárdal á laugardagskvöld í 25. umferð Bestu deildarinnar. Liðin sitja í öðru og þriðja sæti deildarinnar og munar aðeins einu stigi á þeim, KR í vil.

En hver er munurinn á því að enda í 2. og 3. sæti?
Bæði annað og þriðja sæti tryggja þátttökurétt í undankeppni Sambandsdeildar Evrópu næsta sumar. Munurinn felst hins vegar í því hvenær liðin hefja leik.

Liðið sem hafnar í öðru sæti situr hjá í fyrstu umferð undankeppninnar og hefur því leik í annarri umferð. Fyrir vikið minnkar leikjaálagið og félagið sparar sér aurinn í ferðakostnað.

Liðið sem endar í þriðja sæti þarf aftur á móti að hefja keppni í fyrstu umferð og á því lengri leið fyrir höndum ætli það sér að komast í deildarkeppni Sambandsdeildarinnar.

Verðlaunaféð er hins vegar ekki hærra fyrir það eitt að enda í öðru sæti heldur fara greiðslurnar eftir því hvenær lið detta út úr Evrópukeppninni, ekki eftir leiðinni.

Valur hafnaði í 2. sæti deildarinnar á síðasta tímabili og hóf því leika í 2. umferð í forkeppninni í ár. Þá endaði Stjarnan í 3. sæti í fyrra og lék liðið við Víking frá Götu í fyrstu umferð forkeppninnar.
Lið sem endar í 2. sæti situr hjá í fyrstu umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar.

Lið sem endar í 2. sæti situr hjá í fyrstu umferð forkeppni Sambandsdeildarinnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR er með eins stigs forskot á Fram.

KR er með eins stigs forskot á Fram.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besta karla - Efri hluti

#LiðLmunStig
1Víkingur R.24+5059
2KR24+2847
3Fram24+1246
4Breiðablik24+133
5ÍA24-333
6Keflavík24-829
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.