Fotbolti.net
08.10.26 - 09:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Guardiola snýr aftur á Etihad

Guardiola snýr aftur á Etihad
Canon

Mynd: EPA

Breskir fjölmiðlar greina frá því að Pep Guardiola verði viðstaddur þegar Man City fær PSG í heimsókn í Meistaradeildinni í næstu viku.

Það verður fyrsti heimaleikur liðsins síðan það var fundið sekt um alvarleg fjárlagabrot. Liðið heimsækir Liverpool í úrvalsdeildinni um helgina.
Richards niðurbrotinn og Guardiola tjáir sig
TENGT EFNI

Richards niðurbrotinn og Guardiola tjáir sig

Guardiola tjáði sig um dóminn á Instagram á dögunum.

„Ég vil að hver einasti stuðningsmaður Manchester City um allan heim viti að ég er til staðar og hef allaf verið. Ég stend með félaginu mínu, eigandanum, stjórnarformanninum, Ferran (Soriano), leikmönnum, Enzo (Maresca) og ykkur, einsöku stuðningsmönnum," skrifaði Guardiola.

„Höfum það ljóst að við komumst í gegnum þetta saman. Ég elska ykkur öll," sagði hann og lét fylgja með blátt hjarta. Með póstinum birtir hann myndir af sér með Khaldoon Al Mubarak, stjórnarformanni City, og fleirum.

Þetta verður í fyrsta sinn sem Guardiola mætir á Etihad völlinn eftir að hann yfirgaf félagið í lok síðasta tímabil eftir tíu ár við stjórnvölin.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.