08.10.26 - 11:08
Elvar Geir Magnússon
Mourinho hefur ekki náð að lægja öldurnar í klefanum

Jose Mourinho, stjóri Real Madrid.

Mynd: EPA

Kylian Mbappe.

Mynd: EPA

Jose Mourinho, stjóri Real Madrid.

Mynd: EPA
Jose Mourinho ekki tekist að lægja öldurnar í klefanum hjá Real Madrid síðan hann tók aftur við liðinu í sumar.
Það gekk á ýmsu á síðasta tímabili og reglulega komu fréttir af spennu, rifrildum og jafnvel handalögmálum innan hópsins og deilur við þjálfara. Federico Valverde og Aurelien Tchouameni lentu í slagsmálum.
Það vantar ekki egóistana í klefann hjá Madrídingum og oft á tíðum virðist Kylian Mbappe vera miðpunkturinn í allri dramatíkinni samkvæmt spænskum miðlum.
Xabi Alonso og Alvaro Arbeloa áttu fullt í fangi með að reyna að hemja andrúmsloftið í klefanum og spænska útvarpsstöðin Cadena Ser segir að Mourinho hafi ekki náð að bæta ástandið.

TENGT EFNI
Mbappé fór þvert gegn orðum Mourinho
„Andrúmsloftið í klefanum er enn jafn ískalt og það var fyrir fimm mánuðum. Mourinho hefur þrátt fyrir tilraunir ekki tekist að beyta því. Andrúmsloftið er spennuþrungið," segir fréttamaðurinn Anton Meana.
Það er vaxandi spenna á milli Mbappe og Real Madrid eftir að franska ofurstjarnan birti myndband af sér á hjóli samfélagsmiðlum. Þetta gerði hann tíu dögum eftir að Mourinho sagði í viðtali að samningsbundnir leikmenn mættu ekki fara í skíðaferðir eða hjólreiðitúra til að setja eigin heilsu ekki í hættu.

La Liga - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Barcelona | 7 | +24 | 21 |
| 2 | Atletico Madrid | 7 | +9 | 16 |
| 3 | Betis | 7 | +2 | 16 |
| 4 | Real Madrid | 7 | +10 | 15 |
| 5 | Sevilla | 7 | +1 | 13 |
| 6 | Alaves | 7 | +5 | 11 |
| 7 | Deportivo | 7 | +2 | 10 |
| 8 | Real Sociedad | 7 | -4 | 10 |
| 9 | Villarreal | 7 | +1 | 8 |
| 10 | Athletic | 6 | +1 | 8 |
| 11 | Getafe | 7 | -3 | 8 |
| 12 | Vallecano | 7 | -5 | 8 |
| 13 | Osasuna | 7 | -7 | 8 |
| 14 | Celta | 7 | +2 | 7 |
| 15 | Espanyol | 7 | 0 | 7 |
| 16 | Racing Santander | 7 | -10 | 7 |
| 17 | Levante | 6 | -4 | 5 |
| 18 | Elche | 7 | -6 | 5 |
| 19 | Valencia | 7 | -9 | 4 |
| 20 | Malaga | 7 | -9 | 3 |