Plúsar og mínusar Íslands eftir leikina fjóra

Ísland er á toppi riðilsins með tveggja stiga forskot á Eistland.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Orri og Gylfi áttu báðir góða glugga.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Jón Dagur var ónotaður varamaður bæði gegn Lúxemborg og í seinni leiknum gegn Eistum.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Skoraði tvö og lagði upp eitt í glugganum.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Maður leiksins í báðum leikjunum gegn Eistlandi.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Arnar Gunnlaugsson.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Orri og Andri tengdu vel í Lúxemborg.

Mynd: KSÍ

Kostur í hægri bakvarðarstöðuna.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísland er á toppi riðilsins með tveggja stiga forskot á Eistland.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísland vann sannfærandi 3-0 sigra á Lúxemborg og Búlgaríu en þurfti að sætta sig við tvö döpur jafntefli gegn Eistlandi. Næstu leikir fara fram í nóvember þegar Ísland sækir Búlgaríu heim áður en Lúxemborg kemur í heimsókn.
Það var ýmislegt jákvætt í leik íslenska liðsins en jafnframt ýmislegt sem betur mátti fara. Fótbolti.net tók saman helstu plúsa og mínusa úr nýafstöðnum landsleikjaglugga.
Hákon búinn að taka stöðuna
Það er varla hægt að ætlast til meira af Hákoni Rafni Valdimarssyni sem kom inn í markið vegna meiðsla Elíasar Rafns Ólafssonar. Hann fékk aðeins á sig eitt mark, varði vítaspyrnu og var valinn maður leiksins í báðum viðureignunum gegn Eistum.
Það kæmi verulega á óvart ef Hákon hefði ekki tryggt sér stöðu aðalmarkvarðar fyrir næsta landsleikjaglugga með þessum frammistöðum.
Góð tenging Orra og Andra
Orri og Andri voru báðir á skotskónum í glugganum. Andri skoraði tvö mörk og Orri þrjú. Þeir náðu sérstaklega vel saman gegn Lúxemborg þar sem þeir lögðu upp mörk hvor fyrir annan.
Framherjarnir í U21 áttu þó enn betri glugga og setja þeir góða pressu á Orra og Andra.
Innkoma Gylfa
Gylfi Þór Sigurðsson lék stórt hlutverk í keppnisleikjum Íslands í fyrsta sinn í langan tíma. Hann reyndist mikil kjölfesta á miðjunni og það virtist færast meiri ró yfir leik íslenska liðsins með Gylfa innanborðs.
Annar kostur í hægri bakverði
Mikael Neville Anderson kom sterkur inn í hægri bakvörðinngegn Búlgörum. Lítil sem engin samkeppni hefur verið við Guðlaug Victor í stöðunni en frammistaða Mikaels gegn Búlgörum gæti breytt því og skapað raunverulega samkeppni um stöðuna.
Mínusar
Hugmyndasnauðir gegn fimm manna varnarlínu
Báðir leikirnir gegn Eistlandi verða að teljast mikil vonbrigði. Eistar eru rúmum 50 sætum neðar en Ísland á heimslista FIFA en engu að síður var markvörður Íslands valinn maður leiksins í báðum viðureignunum.
Íslenska liðið virtist hugmyndasnautt gegn vel skipulagðri fimm manna varnarlínu Eista og átti í miklum erfiðleikum með að skapa sér færi. Það hlýtur að teljast áhyggjuefni hversu illa liðinu gekk að brjóta niður varnarleik Eista.
Kaldir kantarar
Eftir að Albert Guðmundsson meiddist í fyrsta leik gluggans þurfti einhver að stíga upp í fjarveru hans.
Miklar vonir voru bundnar við Jón Dag Þorsteinsson fyrir landsleikjagluggann enda hafði hann verið funheitur með Hertha Berlín í Þýskalandi í upphafi tímabilsins. Hann var hins vegar ónotaður varamaður í tveimur leikjum og kom með lítið að borðinu gegn Eistum á heimavelli. Hann átti ágætan leik gegn Búlgörum en heilt yfir voru frammistöður hans undir væntingum.
Arnór Sigurðsson náði sömuleiðis lítið að láta að sér kveða í innkomum sínum og þá þurfti Kristall Máni Ingason að draga sig úr hópnum vegna meiðsla.
Hákon Arnar Haraldsson leysti vinstri kantstöðuna vel í fjarveru Alberts en leitaði mikið inn á miðsvæðið til að komast meira í boltann.
Mikael Egill Ellertsson átti einnig ágæta spretti á kantinum en lék í vinstri bakverði í fyrri leiknum gegn Eistum og tók út leikbann í þeim síðari. Nafni hans, Mikael Neville Anderson, kom síðan þokkalega inn á kantinn í síðustu tveimur leikjunum.
Þrátt fyrir ágæta spretti hjá nokkrum leikmönnum vantaði meiri ógn og stöðugleika frá kantmönnum liðsins í glugganum.
Lítil festa varnarlega
Þrátt fyrir að hafa aðeins fengið á sig eitt mark í fjórum leikjum var varnarleikur Íslands langt frá því að vera gallalaus og þurfti Hákon Rafn þurfti ítrekað að koma liðinu til bjargar.
Í svo löngum landsleikjaglugga er óhjákvæmilegt að þurfa að rótera liðinu en það virtist vanta ákveðna festu í varnarlínuna.
Sverrir Ingi Ingason er auðvitað frá vegna meiðsla en Arnar Gunnlaugsson virðist enn vera að leita að sinni sterkustu varnarlínu í fjarveru hans. Spurning hvort að það sé kominn tími til að blóðga menn í U21 landsliðinu.
Bakdyraleiðin að lokast
Möguleikar Íslands á að komast á EM í gegnum svokallaða bakdyraleið hafa minnkað eftir jafnteflin tvö gegn Eistlandi.
Eins og Vísir fjallaði um í gær þá er Ísland með slakasta árangur toppliðanna fjögurra í C-deild Þjóðadeildarinnar og því aftarlega í goggunarröðinni um sæti í umspili. Það gæti reynst dýrkeypt ef Ísland nær ekki að bæta stöðu sína í síðustu tveimur umferðunum.

Orri og Gylfi áttu báðir góða glugga.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Jón Dagur var ónotaður varamaður bæði gegn Lúxemborg og í seinni leiknum gegn Eistum.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Skoraði tvö og lagði upp eitt í glugganum.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Maður leiksins í báðum leikjunum gegn Eistlandi.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Arnar Gunnlaugsson.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Orri og Andri tengdu vel í Lúxemborg.

Mynd: KSÍ

Kostur í hægri bakvarðarstöðuna.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
