Fotbolti.net
08.10.26 - 11:33
Elvar Geir Magnússon

Fyrstur til að tilkynna framboð gegn Infantino

Ramon Vega og eiginkona hans úti að borða.

Ramon Vega og eiginkona hans úti að borða.

Canon

Mynd: Instagram/ramonvega1415

Ramon Vega, fyrrum leikmaður Tottenham og svissneska landsliðsins, er fyrstur til að gefa það út að hann ætli að bjóða sig fram gegn Gianni Infantino, sitjandi forseta FIFA.

Infantino hefur fengið gagnrýni úr öllum áttum eftir áætlanir um að hleypa fjárfestum að heimsmeistaramótinu og öðrum innviðum FIFA. Tillagan mætti gríðarlegri andstöðu um allan heim og var dregin til baka.
Infantino sækist eftir endurkjöri
TENGT EFNI

Infantino sækist eftir endurkjöri

Vega, sem er 55 ára, hefur starfað í viðskiptalífinu síðan hann lagði skóna á hilluna 2004.

„Ég býð mig fram til að sameina alþjóðlegu fótboltafjölskylduna, koma á raunverulegum og varanlegum umbótum, nútímavæða FIFA, endurheimta stöðugleika og trúverðugleika og endurbyggja traustið sem leikurinn okkar þarfnast nauðsynlega," segir Vega en kosið verður á þingi FIFA í mars.

Í síðasta mánuði sagði Infantino að hann væri staðráðinn í að leiða FIFA áfram þrátt fyrir að UEFA, Concacaf og asíska fótboltasambandið hefðu kallað eftir því að hann segði af sér.

Vega íhugaði að bjóða sig fram sem forseti FIFA árið 2015, eftir að fyrrverandi forseti Sepp Blatter var settur í bann.
Höfuðstöðvar FIFA í Sviss.

Höfuðstöðvar FIFA í Sviss.

Canon

Mynd: EPA

Shakira og Gianni Infantino.

Shakira og Gianni Infantino.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.