Fotbolti.net
08.10.26 - 09:37
Albert Guðmundsson

Stjörnulið vikunnar í Fantasy - Sindri Jensson

Sindri Jensson athafnamaður og fyrrum markvörður er einnig liðtækur Fantasy spilari

Sindri Jensson athafnamaður og fyrrum markvörður er einnig liðtækur Fantasy spilari

Canon

Mynd: Baldur Kristjánsson

Nýr þáttur af 38 umferðum kom út í vikunni en hlaðvarpið fjallar um draumaliðsleik enska boltans, Fantasy Premier League. Þáttastjórnendur eru Albert Guðmundsson og Sindri Kamban.

Strákarnir taka fyrir eitt stjörnulið í hverjum þætti og í þessari viku var það Sindri Jensson athafnamaður og fyrrum markvörður.
Liðið hans Sindra sem ber nafnið "The Yuzual Suspects" sótti 66 stig í 5. umferð og var skipað eftirfarandi leikmönnum:

Markmaður
Kinsky (2)

Varnarmenn
Thiaw (4), De Cuyper (6), Shaw (2)

Miðjumenn
Szoboszlai (2), Semenyo (17), Gross (14), Fernandes (2), Ndiaye (5)

Sóknarmenn
Haaland C (12), Wissa (0)

Gross er vinsæll í Fantasy samfélaginu og skilaði Sindra 14 stigum ásamt fjölmörgum eigendum sínum en leikmaðurinn sem gerði gæfumuninn fyrir Sindra þessa umferðina var Semenyo með 17 stig en margir fantasy spilarar voru búnir að gefa Ganverjann upp á bátinn.

Aðspurður segir Sindri að ástæðan fyrir trúnni á Semenyo vera að „hann sé uppáhald allra þjálfara, með líkama byggðan fyrir enska boltann og með gæði í ofanálag". Planið hans Sindra er að losna við Kinsky og gefur upp að Wildcard er á næsta leyti.

Við óskum Sindra góðs gengis í ár og vonum að City mennirnir hans haldi áfram að skila þrátt fyrir óvissuástandið á Etihad þessi misserin.

Við minnum á að allir þættir 38 umferða eru aðgengilegir á hlaðvarpsveitu Fótbolta.net og á YouTube.

Frestur til að gera breytingar fyrir 6. umferð er kl 10:00 á laugardag. Umferðin hefst á leik Arsenal - Leeds kl 11:30 sama dag.

Liðið hans Sindra er tekið fyrir á mínútu 17:35 í þættinum sem má sjá hér fyrir neðan.

Liðið hans Sindra fékk 66 stig í 5. umferð Fantasy deildarinnar

Liðið hans Sindra fékk 66 stig í 5. umferð Fantasy deildarinnar

Canon

Mynd: Fantasy Premier League

Antoine Semenyo verðlaunaði Sindra þolinmæðina með 17 stigum í 5. umferð

Antoine Semenyo verðlaunaði Sindra þolinmæðina með 17 stigum í 5. umferð

Canon

Mynd: Man City

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.