07.10.26 - 08:30
Elvar Geir Magnússon
PSG og Liverpool girnast Cherki - Villa vill Endrick

Erling Haaland og Rayan Cherki.

Mynd: EPA

Endrick, leikmaður Brasilíu og Real Madrid.

Mynd: EPA

Gilberto Mora.

Mynd: EPA

Erling Haaland og Rayan Cherki.

Mynd: EPA

Landsliðsglugganum er lokið og allt færist í samt horf um helgina. Hér má sjá samantekt á helsta slúðrinu þennan miðvikudaginn. BBC tók saman.
Paris St-Germain og Liverpool hafa áhuga á að fá Rayan Cherki (23) ef hann verður fáanlegur frá Manchester City. (Teamtalk)
Aston Villa er viljugt til að ganga frá lánssamningi um brasilíska sóknarmanninn Endrick (20) en leikmaðurinn ungi hefur ekki náð að heilla Jose Mourinho, stjóra Real Madrid. (Cadena SER)
Hollenski varnarmaðurinn Aaron Bouwman (19) hjá Ajax er á lista yfir unga leikmenn sem Newcastle fylgist með fyrir næstu félagaskiptaglugga. (Newcastle Chronicle)
Arsenal er í harðri samkeppni um að fá til sín mexíkóska sóknarmiðjumann Gilberto Mora (17) frá Club Tijuana. (Teamtalk)
Bournemouth hefur engan hug á að selja enska miðjumanninn Alex Scott (23) í janúar þrátt fyrir áhuga frá Chelsea og Real Madrid. (Talksport)
Real Madrid hefur þegar sent njósnara að fylgjast með Scott að minnsta kosti þrisvar sinnum en Liverpool, Arsenal og AC Milan hafa einnig sýnt honum áhuga. (4-4-2.ch)
Útlit er fyrir að Antonio Rudiger (33) yfirgefi Real Madrid í lok tímabilsins en engin áform eru uppi um að bjóða þessum þýska varnarmanni nýjan samning. (Sports Mole)
Tottenham mun setja kaup á sóknarmanni í forgang í félagaskiptaglugganum í janúar, en ólíklegt þykir að félagið muni eyða háum fjárhæðum. (Football Insider)
Real Madrid og Barcelona eru reiðubúin að bjóða JJ Gabriel (15), sóknarmiðjumanni Manchester United, há laun, bónusa og undirskriftarbónus. (Florian Plettenberg)
Bayern München hefur ekki gefið upp vonina um að fá Gabriel til liðs við sig en félagið er ekki tilbúið að ganga að gríðarháum launakröfum umboðsmanna leikmannsins. (Times)
Bayern fylgist með markverði Newcastle, Nick Pope (34), en samningur hans rennur út næsta sumar. (Football Insider)