Fotbolti.net
07.10.26 - 12:03
Elvar Geir Magnússon

Ísland tekur eitt skref upp FIFA listann

Ísland tekur eitt skref upp FIFA listann
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Þó frammistaða Íslands hafi verið misjöfn í þessum landsleikjaglugga þá fór liðið ósigrað í gegnum hann, tveir sigrar og tvö jafntefli.

Þetta skilar Íslandi upp um eitt sæti á styrkleikalista FIFA, liðið fer upp úr 74. í 73. sæti.

Af liðunum sem eru í riðli Íslands í C-deild Þjóðadeildarinnar er það Eistland sem tekur stærsta stökkið og fer upp um fimm sæti, upp í 122. sæti.

Búlgaría hrapar hinsvegar niður um fimm sæti og er í 90. sæti og Lúxemborg fer niður um þrjú sæti niður í 101. sæti.
Ísland áfram taplaust á toppnum
TENGT EFNI

Ísland áfram taplaust á toppnum

Ísland er á toppi riðilsins í C-deild Þjóðadeildarinnar með tveimur stigum meira en Eistland og mun í nóvember leika útileik gegn Búlgaríu og heimaleik gegn Lúxemborg. Efsta sæti riðilsins gefur sæti í B-deildinni en liðið í öðru sæti fer í umspil um að komast upp.

Football Rankings reiknar út að það séu 96% líkur á því að Ísland komist upp í B-deildina.

Á forsíðu Fótbolta.net eru lesendur spurðir að því hvort þeir hafi verið sáttir með landsliðið í glugganum. 59% segja að þetta hafi verið allt í lagi, 24% segjast gera meiri kröfur á frammistöðuna en 17% eru mjög sáttir.


Úr leik Íslands og Búlgaríu.

Úr leik Íslands og Búlgaríu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Innkastið - Ósáttir en ósigraðir

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.