Fotbolti.net
08.11.04 - 14:29

Martin Jol ráðinn stjóri Tottenham (Staðfest)

Martin Jol ráðinn stjóri Tottenham (Staðfest)
Canon
Martin Jol hefur verið ráðinn sem knattspyrnustjóri Tottenham en hann tekur við af Jacques Santini sem sagði af sér á föstudaginn. Jol er einn virtasti þjálfari Hollands en hann er 48 ára gamall. Jol starfaði áður hjá RKC Waalwijk og breytti gengi þeirra mikið og gerði það að góðum klúbbi sem er nú í efstu deildinni í Hollandi.
Á síðasta ári sagðist Jol hafa neitað tilboði frá Sir Alex Ferguson um að ganga í þjálfarateymið á Old Trafford.

Jol var svo ráðinn sem aðstoðarmaður Santini hjá Tottenham en þeir þekkjast vel. Santini var aðeins við stjórnvölin í 13 leiki á White Hart Lane en orðrómur hefur verið uppi um að samkiptaörðugleikar hafi hamlað því að hann yrði áfram hjá félaginu.

Jol var við stjórnvölin um helgina þegar liðið var komið 3-0 undir á heimavelli gegn Charlton eftir 49. mínútur. Hann setti þó Michael Carrick sem átti góðan leik og hjálpaði til við að laga stöðuna í 3-2.

Athyglisvert verður að sjá hvort Jol geti gert góða hluti með Tottenham liðið sem var iðið við kolann á leikmannamarkaðnum í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.