Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 08. nóvember 2019 22:54
Ívan Guðjón Baldursson
Ben Foster: Sjálfstraustið var í molum
Mynd: Getty Images
Ben Foster varði mark Watford í 0-2 sigri í botnslagnum gegn Norwich City fyrr í kvöld.

Watford vann sinn fyrsta deildarleik síðan gegn Huddersfield 20. apríl og kom sér um leið af botni ensku úrvalsdeildarinnar.

„Þetta er búinn að vera smá tími, næstum sex mánuðir síðan við unnum síðast. Það er hlægilegt. Við erum svo glaðir með að hafa náð í þennan sigur í kvöld," sagði Foster.

„Stjórinn er frábær, hann er fullur af orku og ég er ánægður fyrir hans hönd. Hann er nákvæmlega sá maður sem við þurftum á þessum tímapunkti, hann er fullur sjálfstrausts og skilur að við erum allir mannlegir.

„Við erum með hæfnina og gæðin til að halda okkur uppi. Sjálfstraustið var í molum en þessi sigur mun gera mjög góða hluti fyrir það."

Athugasemdir
banner
banner
banner