Arsenal með 20 milljóna punda verðmiða á Jesus - Man City með í forgangi að fá Anderson - City hefur ekki áhuga á Enzo
   fös 08. nóvember 2019 18:14
Ívan Guðjón Baldursson
Guðmundur Friðriks framlengir við Þrótt
Mynd: Raggi Óla
Guðmundur Friðriksson er búinn að framlengja samning sinn við Þrótt R. og gildir hann út tímabilið 2021.

Guðmundur er uppalinn hjá Breiðabliki og var fyrst lánaður til Þróttar sumarið 2016. Hann stóð sig vel, fékk tækifæri hjá Blikum í efstu deild en skipti endanlega yfir til Þróttar í fyrra.

Hann hefur varla misst af leik frá komu sinni í Laugardalinn og var meðal bestu bakvarða Inkasso-deildarinnar í sumar.

Guðmundur er 25 ára og á tíu leiki að baki fyrir yngri landslið Íslands.


Slapp
banner