09.01.04 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Rivaldo kominn til Cruzeiro. (Staðfest)

Brasilíumaðurinn Rivaldo var kynntur opinberlega sem leikmaður Cruzeiro í heimalandi sínu í gær. 250 æstir aðdáendur kappans biðu spenttir eftir honum á flugvellinum þegar hann lenti og þurfti öryggisgæslan á staðnum að aðstoða hann út í bíl. Rivaldo samþykkti samninginn við félagið á mánudag en skrifaði loks undir í gær. Hann hlakkar til að leika í heimalandinu í fyrsta sinn í sjö ár en síðan þá hefur hann leikið með AC Milan nú síðast og áður Deportivo La Coruna og Barcelona á Spáni. Hann var mjög óánægður hjá Milan þá 18 mánuði sem hann lék þar en í gær sagði hann:
,,Ég vil verða ánægður á ný. Sérstaklega eftir það sem gerðist hjá Milan sem var mjög erfið aðstaða fyrir mig."
Rivaldo hélt sæti sínu í landsliðinu þrátt fyrir vandannn á Ítalíu en telur flutninginn bæta stöðu sína hjá landsliðinu.
,,Nú er ég í Brasilíu. Parreira (þjálfari landsliðsins) getur fylgst betur með mér."
Hjá Cruzeiro hittir hann fyrir þjálfarann Vanderlei Luxemburgo sem stjórnaði Rivaldo er báðir voru hjá Palmeiras í Brasilíu á tíunda áratug síðustu aldar og brasilíska landsliðinu sem vann Copa America árið 1999. ,,Það er mér mikilvægt að treysta þjálfaranum. Hann er að búa til söguna í brasilískum fótbolta og ég á honum mikið að þakka. Hann er frábær þjálfari, hann veit hvað ég get og ég veit að ég verð ekki í vandræðum með hann."