09.01.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Wenzel til Kaiserslatuern (Staðfest)




Stuttgart hefur leyft varnarmanninum Timo Wenzel að fara til Kaiserslautern. Wenzel sem er 26 ára hefur verið hjá Stuttgart í tíu ár en vildi komast frá félaginu nú þar sem að hann fékk ekki að spila mikið enda Marcelo Bordon og Fernando Meira sterkir í vörninni. Kappinn skoraði frábært sigurmark í Meistaradeildinni í haust gegn Rangers og hjálpaði það liðinu að komast upp úr riðlakeppninni. Samningur kappans átti að renna út í sumar en Stuttgart leyfði honum að fara strax. Þetta er mikill liðsstyrkur fyrir Kaiserslatuern sem er í 15.sæti í þýsku Bundesligunni. Hany Ramzy og Hervé Lembi eru meiddir og þá eru Bill Tchato og Lucien Mettomo að fara á Afríkumótið svo að liðinu veitir ekki af að styrkja vörnina.
