09.01.05 - 22:00
Magnús Már Einarsson
Þorbjörn Atli aftur í Fram (Staðfest)

Þorbjörn Atli fær tiltal frá dómaranum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þorbjörn Atli fær tiltal frá dómaranum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þorbjörn Atli Sveinsson hefur gengið til liðs við sitt gamla félag Fram en þetta kemur fram á heimasíðu félagsins. Þorbjörn Atli sem er 27 ára gerði þriggja ára samning við Fylki í vor og þar sem hann var samningsbundinn félaginu þarf Fram að greiða 210 þúsund krónur fyrir hann.
Þorbjörn lék með Fram á árum áður og skoraði hann 28 mörk fyrir liðið í 106 leikjum í efstu deild. Þorbjörn sem leikið hefur fyrir U-21, U-19 og U-17 ára landslið Íslands skoraði þrjú mörk í fjórtán leikjum með Fylki í efstu deild síðastliðið sumar.
