09.02.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Cech fer til Chelsea (Staðfest)




Franska liðið Rennes hefur staðfest að tékkneski markvörðurinn Petr Cech muni ganga til liðs við Chelsea næsta sumar. Ekki var gefið upp hvað Chelsea muni borga fyrir Cech en sögusagnir eru á kreiki þess efnis að það verð sé um 9.milljónir punda. Cech sem er 21 árs er landsliðsmarkvörður Tékka númer eitt og hefur hann leikið með Rennes frá 2002 en hann er talinn einn af efnilegri markvörðum í heimi og var einnig undir smásjá Inter Milan og Real Madrid.
Carlo Cudicini aðalmarkvörður Chelsea fær því samkeppni en hann er talinn vera einn besti markvörðurinn í ensku úrvalsdeildinni. Það hefur hinsvegar verið óopinbert mottó Chelsea síðan að Roman Abramovich eignaðist liðið að hafa tvo heimsklassamenn í hverri stöðu
Cech verður fimmti markvörðurinn í herbúðum Chelsea en fyrir eru hjá félaginu auk Cudicini, Carlo Ambrosio, Jurgen Macho og Neill Sullivan.
Cech verður fimmti markvörðurinn í herbúðum Chelsea en fyrir eru hjá félaginu auk Cudicini, Carlo Ambrosio, Jurgen Macho og Neill Sullivan.
