Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   fim 09. apríl 2020 11:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Man Utd berst við Napoli um leikmann Real
Powerade
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Leigubílasögurnar eru nokkrar á skírdegi.



Chelsea er í viðræðum við Barcelona um kaup á Philippe Coutinho (27). Coutinho er á láni hjá Bayern Munchen þessa stundina. (Sport)

Manchester United og Napoli vilja fá James Rodriguez (28) sóknarmann Real Madrid. (AS)

Jack Grealish (24) miðjumaður Aston Villa er enn undir smásjá United. (Evening Standard)

Barcelona ætlar ekki að fá Willian (31) frá Chelsea en Brasilíumaðurinn verður samningslaus í sumar. (Sport)

Chelsea hefur hafið viðræður við Antono Rudiger (27) um samning út tímabilið 2022/23. (Sky Sports)

Napoli hefur áhuga á Felipe Anderson (26) sem er á mála hjá West Ham. (Corriere dello Sport)

Diego Carlos (27) varnarmaður Seville er ánægður á Spáni en Liverpool hefur áhuga. Carlos er með riftunarákvæði upp á 64 milljónir punda. (Estadio Deportivo)

Sadio Mane (27) segir að hann hafi íhugað að fara til Manchester United áður en hann valdi Liverpool. (Times)

Brighton er nálægt því að krækja í Cameron Peupion (17) miðjumann Sydney FC. (Sydney Morning Herald)
Athugasemdir
banner
banner