Fotbolti.net
09.04.26 - 16:34
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Enzo og umbinn biðja Chelsea afsökunar

Enzo Fernandez er lykilmaður hjá Chelsea.

Enzo Fernandez er lykilmaður hjá Chelsea.

Canon

Mynd: EPA

Enzo Fernandez og Javier Pastore, umboðsmaður argentínska miðjumannsins, hafa beðið Chelsea afsökunar á ummælum sem látin voru falla á meðan Enzo var í landsliðsverkefni.

Chelsea setti Enzo í tveggja leikja agabann vegna ummælanna. „Það eru mikil vonbrigði að Enzo skuli tala með þessum hætti. Ég hef ekkert slæmt um hann að segja, en hann fór yfir strikið þegar það kemur að okkar menningu og hvað við viljum byggja," sagði Liam Rosenior, stjóri Chelsea, um ummælin en Enzo hafði daðrað við Real Madrid, sagðist opinn fyrir því að búa í Madríd og sagði að framtíð sín væri í óvissu.
Enzo ýtir undir orðróm - Átrúnaðargoðin spiluðu með Real Madrid
TENGT EFNI

Enzo ýtir undir orðróm - Átrúnaðargoðin spiluðu með Real Madrid

„Við útskýrðum fyrir Enzo að hann hefði ekki átt að segja þetta. Hann er enn ungur og á eftir að læra meira. Hann útskýrði að hann ætlaði sér ekkert illt með orðum sínum og að hann hefði gert rangt. Hann bað félagið, liðsfélagana og stjórann afsökunar. Við erum allir á sömu blaðsíðu. Þetta snerist um að hreinsa upp eftir misskilning, við leystum þetta á síðustu dögum," sagði Pastore við Mercato.

Engin umræða hefur átt sér stað hjá Chelsea um að selja Fernandez og hann er samningsbundinn til 2032.

Real Madrid ætlar sér að kaupa miðjumann í sumar og hefur félagið bæði verið orðað við Fernandez og Rodri hjá Manchester City.
Enzo og umbinn biðja Chelsea afsökunar
Canon

Mynd: EPA

Rosenior var ekki sáttur við sinn mann.

Rosenior var ekki sáttur við sinn mann.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.