09.05.04 - 00:00
Dado Prso til Rangers (Staðfest)

Dado Prso - Á myndinni til vinstri er Boumsong

Dado Prso - Á myndinni til vinstri er Boumsong

Alex McLeish knattspyrnustjóri Rangers er glaður maður eftir að hann fékk Dado Prso leikmann Monaco til að ganga til liðs við félagið. Sam Allardyce stjóri Bolton situr eftir með sárt ennið en hann var líka í viðræðum við Prso.
Þessi króatíski landsliðsmaður mun fara frá Monaco eftir úrslitaleikinn í Meistaradeildinni 26. mai en hann skrifaði undir þriggja ára samning við Rangers. Þessi ákvörðun Prso þykir mjög undarleg því ekki er hann aðeins að fara frá einu besta liði Evrópu heldur hafnaði hann líka að spila í Ensku Úrvalsdeildinni en telja má að peningar hafi skipt miklum sköpum þarna.
Eins og allir vita er skosk knattspyrna langt frá því að vera í sama gæðaflokki og sú enska án þess þó að taka nokkuð frá liði Rangers.
Rangers hafa líka tryggt sér varnarmann Livingston, Marvin Andrews fyrir næsta tímabil og þá mun Alex Rae miðvallarleikmaður Wolves líka halda áfram að ræða við félagið eftir tímabilið á Englandi.
Þá mun franski landsliðsmaðurinn Jean-Alain Boumsong koma frá Auxerre en líkt og með Prso þykir ákvörðum hans mjög undarleg. Hann hafði komist að munnlegu samkomulagi við Gerard Houllier stjóra Liverpool en hætti við það og ákvað að fara til Rangers sem höfðu sýnt honum mikinn áhuga.