Bukayo Saka átti stórleik fyrir Arsenal í kvöld sem mætti West Bromwich Albion í ensku úrvalsdeildinni.
Saka fær níu í einkunn frá Sky Sports fyrir frammistöðuna en Arsenal vann leikinn með þremur mörkum gegn einu.
West Brom er fallið úr úrvalsdeildinni eftir úrslit kvöldsins og var Sam Allardyce að falla í fyrsta sinn.
Nicolas Pepe fær einnig góða einkunn eða átta fyrir sína frammistöðu en hann komst á blað í fyrri hálfleik.
Hér má sjá einkunnir kvöldsins.
Arsenal: Leno (6), Chambers (6), Holding (6), Gabriel (6), Saka (9), Elneny (6), Ceballos (6), Smith Rowe (7), Pepe (8), Willian (7), Martinelli (6).
Varamenn: Lacazette (6), Tierney (7), Partey (6)
West Brom: Johnstone (6), Furlong (6), Bartley (6), Ajayi (6), Townsend (6), Yokuslu (6), Gallagher (6), Phillips (7), Pereira (8), Robinson (7), Diagne (6).
Varamenn: Robson-Kanu (6), Diangana (6).
Athugasemdir