Fotbolti.net
09.06.18 - 10:54
Magnús Már Einarsson

Heimir: Þrælyfirvegað andrúmsloftið hjá hópnum

Auglýsing
Heimir: Þrælyfirvegað andrúmsloftið hjá hópnum
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Icelandair
„Ég held að allir séu klárir og spennti að koma til Rússlands,\" sagði Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari, þegar Fótbolti.net náði í hann áður en íslenska landsliðið fór í flug til Rússland þar sem það keppir á HM í Rússlandi.

Það verður opin æfing á morgun og svo verður undirbúningur fyrir fyrsta leik kominn á fullt.
„Mér finnst þrælyfirvegað andrúmsloftið hjá hópnum og starfsfólkinu líka. Munurinn frá Frakklandi er sá að við vitum út í hvað við erum að fara út í, þó þetta sé allt mikið stærra. Þess vegna finnst mér vera rólegt yfirbragð yfir þessu.\"

„Við þekkjum rútínuna. Sérstaklega eru leikmennirnir reyndari en fyrir tveimur árum.\"

Það er um sex tíma flug framundan. Hvernig ætlar Heimir að dreifa huganum?

„Maður horfir á einhverja fótboltaleiki og einhverja bíómynd. Það er alltaf gott að fljúga með Icelandair. Þeir hafa ýmislegt gott fyrir mann á leiðinni,\" sagði Heimir að lokum.

Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.

Sjá einnig:
Heimir sendi töskuna í Stykkishólm - Flugið frestaðist
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.