Fotbolti.net
08.11.26 - 11:01
Brynjar Ingi Erluson

Kompany snýr aftur eftir landsleikjahléið

Vincent Kompany

Vincent Kompany

Canon

Mynd: EPA

Vincent Kompany, þjálfari Bayern München, mun snúa aftur á hliðarlínuna eftir landsleikjahléið. Þetta staðfesti Uli Hoeness, heiðursforseti félagsins, í viðtali við BR24.
Kompany kominn heim og orsök veikindanna fundin
TENGT EFNI

Kompany kominn heim og orsök veikindanna fundin

Kompany hefur ekkert stýrt æfingum Bayern undanfarnar vikur eftir að hafa hnigið niður á æfingasvæði félagsins.

Belginn hafði unnið langt umfram það sem góðu hófi gegnir og var álagið orðið of mikið, bæði andlega og líkamlega.

Hann var fluttur á sjúkrahús þar sem hann gekkst undir ítarlegar rannsóknir og greindist með heilahimnubólgu. Í kjölfarið fékk hann að snúa heim og hefur síðan tekið því rólega til að jafna sig og ná fyrri styrk.

Aðstoðarmenn Kompany hafa hlaupið í skarðið og stýrt Bayern í síðustu leikjum, en nú styttist í að hann snúi aftur á hliðarlínuna.

„Hann kemur aftur eftir tvær til þrjár vikur og verður því kominn aftur á bekkinn eftir landsleikjahléið. Hann var að vinna tólf tíma á dag, sex daga vikunnar, og það er einfaldlega allt of mikið,“ sagði Hoeness.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.