08.11.26 - 11:09
Brynjar Ingi Erluson
Viðræður Liverpool við Ngumoha ganga vel

Rio Ngumoha

Mynd: EPA

Rio Ngumoha

Mynd: EPA
Viðræður Liverpool við enska táninginn Rio Ngumoha um nýjan samning ganga mjög vel, að sögn ítalska félagaskiptasérfræðingsins Fabrizio Romano.
Ngumoha, sem er 18 ára, er samningsbundinn Liverpool út næsta tímabil.
Hann er talinn einn efnilegasti leikmaður Englands og vill Liverpool alls ekki missa hann frá sér, enda er hann talinn geta orðið ein af framtíðarstjörnum félagsins.
Romano greinir frá því að Liverpool sé í viðræðum við Ngumoha og umboðsmenn hans um nýjan samning og gangi þær vel. Félagið leggur mikla áherslu á að ganga frá samkomulagi sem allra fyrst og hefur verið rætt um að niðurstaða gæti legið fyrir síðar í þessum mánuði.
Bayern München hefur einnig mikinn áhuga á Ngumoha og hefur átt viðræður við föruneyti hans, en eins og staðan er núna þykir líklegast að hann verði áfram hjá Liverpool næstu árin.
Á þessu tímabili hefur Ngumoha byrjað sjö leiki í öllum keppnum og lagt upp tvö.