Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 09. júní 2026 16:38
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sölvi segir leikinn gegn ÍA þann stærsta á tímabilinu - Fylgjast með Gylfa
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sölvi Geir Ottesen.
Sölvi Geir Ottesen.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Við settum okkur markmið um að gera vel í þessari keppni og við mætum í hvern einasta leik til að vinna hann. Þetta er mjög mikilvægur leikur upp á að ná okkur markmiðum, það er mikilvægt að taka ekki augun af markmiðunum, við virðum þessa keppni og virðum hvern einasta leik sem við förum í. Þetta er stærsti leikurinn á tímabilinu hingað til," segir Sölvi Geir Ottesen, þjálfari Víkings, um komandi leik gegn ÍA í Mjólkurbikarnum. Hann var spurður hvort það væri mikilvægt að vinna leikinn þar sem hann væri með stóran hóp og með sigri fengist annar leikur.

Víkingur heimsækir ÍA á föstudagskvöld í 8-liða úrslitum keppninnar. Víkingur datt út í 32-liða úrslitunum í fyrra eftir að hafa verið á miklu bikarskriði árin á undan. Vinnist leikurinn á föstudag spilar Víkingur svo aftur eftir tæplega tvær vikur í undanúrslitum keppninnar.

Gylfi Þór Sigurðsson er með íslenska landsliðinu í Alabama en liðið mætir Argentínu klukkan 01:00 í nótt. Sölvi var spurður hvort það væri búið að taka ákvörðun hvort Gylfi spili gegn ÍA.

„Við þurfum að sjá hvernig allt gengur, hversu margar mínútur hann spilar, hvernig ferðalagið heim gengur og hvernig hann verður eftir það. Við þurfum að meta stöðuna út frá því," segir þjálfarinn.
Slapp
banner
banner