Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   þri 09. júní 2026 11:52
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Þess vegna er Ögmundur kominn í Víking
Ögmundur mættur í Víkina.
Ögmundur mættur í Víkina.
Mynd: Víkingur
Aron Snær hefur staðið vaktina vel hjá Víkinni og er númer eitt.
Aron Snær hefur staðið vaktina vel hjá Víkinni og er númer eitt.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsmaðurinn Ögmundur Kristinsson var í gær tilkynntur sem nýr leikmaður Víkings en félagið fær markvörðinn í neyðarskiptum utan félagaskiptaglugga. Hann á að veita Aroni Snæ Friðrikssyni samkeppni um markvarðarstöðuna í liðinu.

Fótbolti.net ræddi við Sölva Geir Ottesen, þjálfara Víkings, um Ögmund.

„Ögmundur er fyrst og fremst fenginn af því hann er öflugur markvörður, var laus og við þurftum á öflugum markverði að halda. Það er virkilega sterkt að hafa náð að landa jafn reynslumiklum og góðum markverði og hann er. Aron er fyrsti markvörðurinn okkar, hefur staðið sig hrikalega vel og við erum mjög sáttir með hans innkomu - treystum honum fullkomlega í verkefnið. Það er eins með Ögmund og alla aðra leikmenn, hann þarf að sanna sig og þegar hann fær tækifæri þá þarf hann að grípa þau og gera vel á æfingum. Þá, eins og með alla aðra leikmenn í liðinu, eru honum allir vegir færir. Við erum ekkert búnir að ákveða að hann taki þessa keppni eða hina keppnina, það er ekkert svoleiðis komið enn," segir Sölvi aðspurður hvort það hafi mögulega þegar verið ákveðið að Ögmundur spili í Mjólkurbikarnum, en næsti leikur Víkings verður gegn ÍA í bikarnum á föstudag.

Voruð þið heppnir að svona öflugur markvörður var á lausu?

„Klárlega. Hann kemur með mikla reynslu, er búinn að spila erlendis og er gífurlega reynslumikill markvörður. Það er frábært að fá svona öflugan markvörð inn í hópinn okkar, hann kemur til með að hjálpa liðinu rosalega mikið og veitir Aroni heilbrigða samkeppni. Það er mikil samkeppni í liðinu og ég tel það part af því hversu gott gengi okkar hefur verið, það er gífurleg samkeppni í liðinu, menn að ýta við hvor öðrum, og við þurfum það líka í markvarðarstöðunni. Það er því frábært að Ögmundur sé kominn og hann á klárlega eftir að hjálpa Aroni að verða að betri markverði líka."

Hefur góð spilamennska Arons komið þér á óvart?

„Nei, í raun og veru ekki. Við vorum búnir að skoða hann vel og fylgjast með honum, við vissum hvað bjó í honum. Við töldum að í okkar umhverfi hér í Víkinni þá myndi hann bæta sinn leik og það hefur ekkert komið mér á óvart hversu öflugur hann hefur verið."

„Það er nóg af leikjum eftir og menn verða að halda sama fókus og þeir hafa verið að gera. Þess vegna er Ögmundur kominn, til að halda Aroni á tánum svo þetta verði ekki of þægilegt fyrir hann,"
segir Sölvi.
Slapp