Real Madrid blandar sér í baráttuna um Fernandes - Brighton hafnaði öðru tilboði í Van Hecke
   mán 08. júní 2026 11:13
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ögmundur í Víking (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ögmundur Kristinsson er genginn í raðir Víkings en hann kemur frá Val þar sem hann samdi um starfslok í síðustu viku.

Samningurinn gildir út yfirstandandi tímabil. Hjá Víkingi mun hann veita Aroni Snæ Friðrikssyni samkeppni um stöðuna í liðinu.

Víkingur óskaði eftir því að fá undanþágu frá KSÍ að fá Ögmund strax til sín í neyðarskiptum utan glugga vegna veikinda Ingvars Jónssonar og meiðsla Ugga Jóhanns Auðunssonar. Þegar þetta er skrifað er Ögmundur ekki kominn með leikheimild.

Uppfært 11:40: Ögmundur er kominn með leikheimild með Víkingi frá og með morgundeginum.

Ögmundur er fæddur árið 1989 og sneri aftur til Íslands sumarið 2024 eftir um áratug í atvinnumennsku. Hann var því í tæp tvö ár hjá Val og spilaði alls ellefu deildarleiki fyrir félagið.

Hann lék með Val á undirbúningstímabili en var svo ekki í hóp eftir fyrstu tvo leikina í deildinni. Hann fór með landsliðinu til Japans fyrir rúmri viku en hann á að baki 19 landsleiki á sínum ferli.

Víkingur er á toppi Bestu deildarinnar og framundan er 8-liða úrslit í Mjólkurbikar karla gegn ÍA á föstudag. Í júlí fer Víkingur svo í forkeppni Meistaradeildarinnar og markmið félagsins er að komast í deildarkeppni í Evrópu í haust.
Slapp
banner
banner