09.07.04 - 13:27
Magnús Már Einarsson
Ian Harte til Spánar (Staðfest)




Vinstri bakvörðurinn Ian Harte hefur gengið til liðs við spænska liðið Levante og skrifað undir fjögurra ára samning við þessa nýliða í La Liga. Harte sem að er 26 ára er enn einn leikmaðurinn sem að yfirgefur Leeds en Levante þurfti ekki að borga neitt fyrir þennan spyrnusérfræðing. Harte sem að á 55 landsleiki að baki fyrir Íra slæst í hóp með Alan Smith, James Milner, Paul Robinson, Mark Viduka og Dominic Matteo sem að allir hafa yfirgefið Leeds að undanförnu.
Í síðustu viku fékk Levante einnig José Antonio Culebras frá Numancia og einnig Johan Mjällby frá Celtic og því er ljóst að þetta lið frá Valencia kemur sterkt til leiks í La Liga.
