Fotbolti.net
09.07.20 - 20:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Fernandes bætti met í kvöld

Fernandes bætti met í kvöld
Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United er að sigra Aston Villa, 0-3, á Villa Park þegar þetta er skrifað.

Bruno Fernandes, portúgalski miðjumaðurinn sem gekk í raðir United í janúar, bætti í kvöld met þegar hann bæði skoraði og lagði upp mark.
Fernandes skoraði úr umdeildri vítaspyrnu í fyrri hálfleik og svo lagði hann upp mark fyrir Paul Pogba þegar hann tók hornspyrnu út fyrir teiginn þar sem Pogba stóð, tók við boltanum og lét vaða á markið.

Metið sem Bruno bætti er fjöldi marka sem leikmaður hefur komið að í sínum fyrstu tíu úrvalsdeildarleikjum. Hann hefur alls skorað eða lagt upp þrettán mörk í þessum fyrstu tíu leikjum sínum. Hann fór af velli á 71. mínútu fyrir Fred. Mörkin hjá Bruno eru sjö og stoðsendingarnar sex.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.