Fotbolti.net
05.11.26 - 15:13
Elvar Geir Magnússon

L’Equipe hraunar yfir Lens - Sex fengu 1 í einkunn

Forsíða L’Equipe.

Forsíða L’Equipe.

Canon

Mynd: L’Equipe

Franska blaðið L’Equipe lét leikmenn Lens heyra það eftir 1-9 tap liðsins á heimavelli gegn ítalska liðinu Como í Meistaradeildinni. Blaðið kallaði lið Lens „aumkunarvert“ og gaf fimm byrjunarleikmönnum 1/10 í einkunn.

Yannick Cahuzac, stjóri Lens, fékk einnig 1 af 10 í einkunn.

Como, undir stjórn Cesc Fabregas, sló hin ýmsu met með þessum magnaða stórsigri. Como varð meðal annars fyrsta ítalska félagið til að skora níu mörk í einum leik í Evrópukeppni og tryggði sér stærsta útisigur allra tíma í Meistaradeildinni.

„Fáránlegt“ stóð á forsíðu L’Equipe og í greininni er sagt að Lens hafi ekki getað sýnt neina mótspyrnu og hafi verið niðurlægt á skala sem aldrei hefur sést áður hjá frönsku félagi í Evrópukeppni,

Einkunnir leikmanna frá franska blaðinu voru óhjákvæmilega líka harðar, þar sem fimm byrjunarleikmenn Lens fengu 1/10 og hæsta einkunnin var 3/10.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.