Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 09. júlí 2021 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Milan er að krækja í Giroud - Kostar tvær milljónir
Mynd: EPA
Fjölmiðlar á Ítalíu og Englandi greina frá því að franski sóknarmaðurinn Olivier Giroud er að skipta yfir til AC Milan fyrir tvær milljónir evra.

Milan borgar eina milljón fyrir Giroud og gæti greitt eina milljón aukalega í árangurstengdar aukagreiðslur.

Hinn 34 ára gamli Giroud er hokinn af reynslu og skoraði 39 mörk á þremur og hálfu ári hjá Chelsea.

Hann er fenginn til Milan þar sem hann á að leiðbeina yngri leikmönnum félagsins ásamt Zlatan Ibrahimovic.

Ante Rebic og Rafael Leao eru einnig meðal sóknarmanna Milan sem er í mikilli framherjaleit.
Athugasemdir
banner