Fotbolti.net
09.07.26 - 23:08
Elíza Gígja Ómarsdóttir

Ída Marín um hvort hún sé að fara í atvinnumennsku: No comment

Auglýsing
Ída Marín Hermannsdóttir, leikmaður FH

Ída Marín Hermannsdóttir, leikmaður FH

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz

„Geggjaður sigur, þetta var bara frábært hjá okkur,“ sagði Ída Marín Hermannsdóttir, leikmaður FH, eftir 7-3 sigur á Þrótti í Kaplakrika í dag.

Lestu um leikinn: FH 7 - 3 Þróttur R.

Það helliringdi fyrir leikinn og í upphafi leiks og undirrituð hafði áhyggjur af því að völlurinn yrði eitthvað þyngri fyrir vikið en það virtist ekki hafa mikil áhrif á Ídu sem skoraði fimm mörk í leiknum

„Ég var að spila striker og ég hef ekki gert það í sumar og mér fannst það bara geggjað. Hlaupa inn fyrir, klára færin mín og ég var alltaf til í að fá boltann.“

Aðspurð hvort að þrennan sem hún setti á fjórum mínútum í fyrri hálfleik sé sú fljótasta sem hún hefur skorað segir hún:

„Já, ég skoraði eina þrennu í fyrra og sett nokkrar en bara úti í Bandaríkjunum.“

Ída er að spila sitt langbesta tímabil hér á Íslandi hingað til en hvað er það við umhverfið í FH sem er að hafa svona góð áhrif á hana?

„Ég er með frelsi til að vera ég sem leikmaður hvar sem það er á vellinum. Þó að ég sé í tíunni, sexunni þeir bara treysta mér að klára mitt verkefni og já, bara geggjaðar stelpur, geggjaðir þjálfarar.“

Undanfarið hefur Ída verið orðuð við atvinnumennsku og talað um að hún hafi einhverja kosti í Bandaríkjunum og á Spáni, er eitthvað til í því?

„Bara, no comment.“

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.