09.08.03 - 00:00
Haraldur Hreinsson
Mutu til Chelsea (staðfest)
Kaupæði Roman Abramovic linnir ekki og rauf hann 75 milljón punda múrinn í dag þegar rúmenski framherjinn, Adrian Mutu gekk til liðs við þá og var kaupverðið 15.8 milljónir punda. Mutu var áður hjá Parma og staðfesti ítalska liðið þetta í dag.
Mutu skoraði 17 mörk í Serie A á síðustu leiktíð og fjögur í UEFA keppninni.
