Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   þri 09. ágúst 2022 12:34
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Auddi Blö lætur í sér heyra - „Komið til umræðu í einhverju kaffiboðinu"
Óskar Örn og Pablo Punyed ræða saman.
Óskar Örn og Pablo Punyed ræða saman.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Óskar Örn Hauksson hefur mikið þurft að verma varamannabekkinn hjá Stjörnunni á þessari leiktíð.

Óskar, sem er mögulega besti leikmaður í sögu efstu deildar, var fenginn til Stjörnunnar fyrir leiktíðina eftir að hafa verið gríðarlega mikilvægur hluti af liði KR í mörg ár. Það var búist við því að hann yrði lykilmaður í Stjörnunni en svo hefur ekki verið.

Hinn 37 ára gamli Óskar er eflaust ekkert sérlega sáttur með stöðu sína í Stjörnunni þá þjálfari liðsins segi annað.

„Auddi Blö, kóngurinn, var með pillu á Garðbæinga," sagði Sverrir Mar Smárason í útvarpsþættinum en hægt er að sjá tístið hér fyrir neðan.

„Auddi Blö að taka þetta saman. Hann þekkir Óskar Örn ansi vel og ég ætla að giska á að þetta hafi komið til umræðu í einhverju kaffiboðinu," sagði Elvar Geir Magnússon.

„Eða þá að hann fylgist bara rosalega með. Ég hef séð hann nokkrum sinnum á leikjum. Þá er hann bara mættur til að horfa á Óskar," sagði Sverrir.

Auddi og Óskar eru svilar, þeir eru tengdir fjölskylduböndum.

Sjá einnig:
„Óskar er alltaf ánægður og alltaf brosandi"


Útvarpsþátturinn - Íslenska fótboltavikan og enskt hringborð
Athugasemdir