09.08.26 - 11:59
Brynjar Ingi Erluson
Fram kallar Óliver Elís til baka frá ÍR (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Framarar hafa kallað Óliver Elís Hlynsson til baka úr láni frá ÍR, en þetta staðfesta ÍR-ingar á samfélagsmiðlum sínum í dag.
Óliver Elís er 21 árs gamall varnarmaður sem er uppalinn hjá ÍR en gekk til liðs við Fram veturinn 2024.
Hann lék þrjá leiki með Fram í Bestu deildinni á síðasta ári áður en hann sneri aftur til ÍR á láni síðari hluta tímabilsins.
Óliver var aftur lánaður í Breiðholtið fyrir þetta tímabil og hefur staðið sig mjög vel. Hann hefur komið við sögu í níu leikjum með ÍR í sumar.
„Við viljum færa Óla hjartans þakkir fyrir hans framlag fyrir ÍR bæði innan sem utan vallar í sumar og óskum honum, og Frömurum, að sjálfsögðu alls hins besta í Bestu deildinni,“ segir í tilkynningu ÍR-inga.