Fotbolti.net
09.08.26 - 15:44
Brynjar Ingi Erluson

Hull kaupir leikmann frá sænsku meisturunum (Staðfest)

Hull kaupir leikmann frá sænsku meisturunum (Staðfest)
Canon

Mynd: Hull City

Nýliðar Hull City hafa fest kaup á sænska landsliðsmanninum Elliot Stroud frá Svíþjóðarmeisturum Mjällby.
Mörg félög sýndu Stroud áhuga í sumar en Hull varð á endanum fyrir valinu.

Hinn 24 ára gamli vinstri bakvörður skoraði tíu mörk á síðustu leiktíð þegar Mjällby kom öllum á óvart og varð sænskur deildarmeistari og svo bættist bikarmeistaratitillinn við safnið í maí á þessu ári.

Frammistaðan skilaði honum sæti í sænska landsliðinu á þessu ári. Hann fór með liðinu á heimsmeistaramótið í sumar og kom við sögu í öllum leikjum þess.

Hull náði samkomulagi við Mjällby um kaupverð á dögunum. Samkvæmt sænskum fjölmiðlum greiðir enska félagið um fjórar milljónir punda, sem samsvarar 49 milljónum sænskra króna.

Stroud skrifaði undir fjögurra ára samning með möguleika á eins árs framlengingu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.