Manchester United 2-2 Manchester City
0-1 Khadija Shaw ('38)
1-1 Lucy Staniforth ('72)
2-1 Alessia Russo ('75)
2-2 Ellen White ('79)
Rautt spjald: Georgia Stanway ('35)
0-1 Khadija Shaw ('38)
1-1 Lucy Staniforth ('72)
2-1 Alessia Russo ('75)
2-2 Ellen White ('79)
Rautt spjald: Georgia Stanway ('35)
Það var stórleikur á dagskrá í hádeginu í dag þegar Manchester United og Manchester City áttust við í kvennaflokki.
Fyrir leikinn í dag hafði United farið vel af stað en liðið var með níu stig eftir fjóra leiki. City var hins vegar einungis með þrjú stig.
Þetta byrjaði ekki vel fyrir Manchester City en Georgia Stanway fékk rautt spjald í fyrri hálfleik. Það stoppaði þær hins vegar ekki því stuttu síðar skoraði Kadija Shaw og leiddu tíu leikmenn City leikinn þegar flautað var til hálfleiks.
United skoraði hins vegar tvö mörk á fjögurra mínútna kafla í síðari hálfleiknum og komst í forystu. Einum færri tókst City að koma til baka og jafna metin. Það gerði Ellen White þegar um tíu mínútur voru til leiksloka.
Leiknum lauk því með 2-2 jafntefli en María Þórisdóttir lék allan leikinn í hjarta varnarinnar hjá Man Utd.
Man Utd er í þriðja sætinu með tíu stig eftir leikinn en Man City er í því níunda með fjögur stig.
Athugasemdir