Fotbolti.net
09.10.21 - 16:40
Aksentije Milisic

Lacazette efstur á blaði hjá Inter Milan

Lacazette efstur á blaði hjá Inter Milan
Canon

Mynd: Getty Images

Alexandre Lacazette, framherji Arsenal, er efstur á óskalista Inter Milan en Ítalíumeistararnir vilja fá leikmanninn í janúar glugganum.
Þessi þrítugi Frakki er á samningi hjá Arsenal út þetta tímabil og ljóst er að félagið mun ekki bjóða honum áframhaldandi samning.

Inter vill fá Lacazette en til þess þarf liðið að ná að losna við Alexis Sanchez og launapakkann sem honum fylgir.

Lacazette hefur enn ekki spilað leik í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili en Atletico Madrid hefur einnig verið áhugasamt um leikmanninn.

Inter seldir Romelu Lukaku og Achraf Hakimi fyrir samtals 157 milljónir punda og eyddi einungis 30 milljónum punda á móti, síðasta sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.