Fotbolti.net
09.10.26 - 15:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

„Hvar væri ég án hennar?"

Skrifar frá Rovinj í Króatíu

Guðrún Arnardóttir.

Guðrún Arnardóttir.

Canon

Mynd: Hammarby

Eimskip
Ída Marín Hermannsdóttir gekk í raðir sænska félagsins Hammarby fyrir ekki svo löngu. Þar var fyrir varnarjaxlinn Guðrún Arnardóttir og segir Ída að hún hafi hjálpað sér gríðarlega mikið.

Guðrún gekk sjálf í raðir Hammarby fyrr á þessu ári en hún hefur mikla reynslu úr atvinnumennskunni.
Ída fékk góða hjálp - „Ég valdi rétta félagið"
TENGT EFNI

Ída fékk góða hjálp - „Ég valdi rétta félagið"

„Jesús, já. Hvar væri ég án hennar?" sagði Ída í samtali við Fótbolta.net aðspurð að því hvort það væri gott að hafa Guðrúnu í liðinu.

„Hún er besta týpan til að hafa sér við hlið. Hún hefur verið lengi í atvinnumennsku og landsliðinu. Hún veit að þetta er erfitt í byrjun og hefur hjálpað mér í gegnum þetta allt saman."

Ísland mætir Króatíu í umspili um sæti á HM núna klukkan 16:45.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.