Fotbolti.net
10.01.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson

Ilie til Besiktas (Staðfest)

Adrian Ilie.

Adrian Ilie.

Canon
Rúmenski sóknarmaðurinn Adrian Ilie hefur skrifað undir samning út þessa leiktíð við tyrkneska liðið Besiktas. Ilie sem var til reynslu hjá Wolves og Blackburn í síðasta mánuði hefur áður leikið í Tyrklandi, með Galatasary 1996 og 1997 áður en að hann fór til Valencia þar sem að hann dvaldi til ársins 2002. Hann lék með Alavés á seinustu leiktíð en hætti þar síðastliðið sumar og hefur verið án liðs síðan þá. Ilie gæti fengið framlengingu um tvö ár á samningi sínum við Besiktas næsta sumar ef að hann stendur sig vel.
Kappinn var í skýjunum yfir því að koma til Besikstas og hlakkaði til að hitta landa sína Mircea Lucescu þjálfara og Daniel Pancu miðjumann. Besiktas situr á toppi deildarinnar í Tyrklandi en Ilie mun mæta sínum gömlu félögum í Valencia í næsta mánuði í evrópukeppni félagsliða.

Ilie hefur skorað 12 mörk í 42 landsleikjum með Rúmenum en hefur aðeins leikið einn landsleik á seinustu tveimur árum.

Þess má svo til gamans geta að Claudio Ranieri stjóri Chelsea gaf Ilie gælunafnið "gleraugnaslangan" þegar að þeir voru báðir hjá Valencia en Ranieri fannst nafnið tilvalið því að Ilie klárar færin sem að hann fær mjög vel.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.