10.03.04 - 00:00
Magnús Már Einarsson
Kenna til Derby (Staðfest)




Derby hefur fengið varnarmanninn Jeff Kenna frítt frá Birmingham. Samningur hins 33 ára gamla Kenna við Birmingam átti að renna út næsta sumar en hann hefur ekki leikið með liðinu síðan í febrúar og því var honum leyft að fara til Derby. Kenna lék 21 leik með Birmingham á tímabilinu og þar af var hann fjórtán sinnum í byrjunarliði. Hann á 27 landsleiki að baki með Írum og styrkir lið Derby mjög mikið en George Burley stjóri liðsins hefur reynt að fá hann til liðsins allt þetta tímabil.
