Fotbolti.net
10.03.25 - 23:13
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Spánn: Bjargaði stigi fyrir Girona með 'Panenka' spyrnu

Cristhian Stuani

Cristhian Stuani

Canon

Mynd: EPA

Espanyol 1 - 1 Girona
1-0 Jofre Carreras ('49 )
1-1 Cristhian Stuani ('88 , víti)
Girona gat komist upp fyrir Real Sociedad í 11. sæti deildarinnar með sigri á Espanyol í kvöld.

Espanyol komst yfir snemma í seinni hálfleik þegar Jofre Carreras skoraði eftir skyndisókn. Carreras brunaði upp hálfan völlinn án þess að fá nokkra mótspyrnu og tók skotið fyrir utan teig og boltinn fór í netið.

Girona fékk vítaspyrnu undir lok leiksins og reynsluboltinn Cristhian Stuani fór á punktinn.

Hann ákvað að taka svokallaða Panenka spyrnu þar sem hann vippaði beint á markið og það bar árangur, þessi 38 ára gamli sóknarmaður skoraði og tryggði Girona stig.

Girona er því í 13. sæti með 33 stig en Espanyol er í 15. sæti með 28 stig en á leik til góða.

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona11+3430
2Atletico Madrid11+1428
3Real Madrid11+1827
4Betis11+323
5Real Sociedad11019
6Sevilla12-218
7Athletic10+415
8Deportivo11+114
9Alaves12-213
10Villarreal11012
11Celta11012
12Vallecano10-512
13Getafe11-812
14Espanyol11-111
15Osasuna11-1111
16Racing Santander11-1411
17Elche11-410
18Levante11-510
19Valencia11-99
20Malaga11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.