Fotbolti.net
10.06.04 - 10:09
Magnús Már Einarsson

Ziege til Gladbach (Staðfest)

Ziege til Gladbach (Staðfest)
Canon
Þýski vinstri bakvörðurinn Christian Ziege hefur gengið til liðs við Borussia Moenchengladbach í Þýskalandi. Ziege sem að er 32 ára var fyrir skömmu leystur undan samningi hjá Tottenham og því fer hann frítt til Gladbach. Ziege er fimmti leikmaðurinn sem að Gladbach fær í sumar en hinir eru Milan Fukal, Oliver Neuville, Darius Kampa og Sead Ramovic.
Ziege sem að er í landsliðshóp Þjóðverja fyrir EM skrifaði undir tveggja ára samning við Gladbach en kappinn hefur verið óheppinn með meiðsli á ferli sínum. Hann lék á sínum tíma með Middlesbrough og Liverpool en er núna kominn heim til Þýskalands.

Ziege sem að á 72 landsleiki að baki með Þjóðverjum sagði í gær að hann hefði haft ýmsa aðra möguleika og hefði getað fengið betur borgað annarsstaðar en hjá Gladbach.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.