Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 10. júní 2019 16:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Baulað á Van Dijk en honum er alveg sama
Mynd: Getty Images
Virgil van Dijk, varnarmanni hollenska landsliðsins, er alveg sama þó áhorfendur bauli á sig.

Stuðningsmenn enska landsliðsins bauluðu Van Dijk, sem var frábær með Liverpool á tímabilinu er liðið vann Meistaradeildina, í Þjóðadeildinni. Van Dijk spilaði með Hollandi sem vann England í undanúrslitum Þjóðadeildarinnar en tapaði gegn Portúgal í úrslitaleiknum.

„Mér er sama þótt einhver bauli á mig eða liðið, við erum að reyna að vinna leikinn," segir Van Dijk.

„Við vitum að það eru margir að styðja við bakið á okkur. Við leikmennirnir þurfum að sinna starfi okkar og þetta hefur engin áhrif á okkur."

Holland tapaði í gær 1-0 fyrir Portúgal í úrslitaleik Þjóðadeildarinnar.

„Auðvitað vildum við vinna, en við verðum að jafna okkur og læra af þessu. Við erum með ungt lið og ætlum okkur á EM."
Athugasemdir
banner
banner
banner