Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 10. júlí 2021 10:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Jóhann Helgi jafnaði markamet Þórs
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þór vann 5-1 sigur á Þrótti í Lengjudeildinni í gær.

Jóhann Helgi Hannesson er Þórsari í húð og hár en hann hefur leikið með Þór frá árinu 2007 með stuttri viðkomu í Grindavík.

Eins og áður segir vann Þór í gær 5-1 en Jóhann byrjaði á varamannabekknum en kom inná þegar hálftími var eftir.

Hann gerði sér lítið fyrir og skoraði síðasta mark leiksins þegar fjórar mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. „Frábær sprettur hjá Kristófer inn í teiginn sem leggur boltann fyrir á Jóhann sem rennir boltanum inn í markið." segir í textalýsingu leiksins um markið hans.

Þetta var mark númer 73 hjá Jóhanni fyrir Þór í deild og bikar en með þessu marki jafnaði hann markamet Þórs sem Ármann Pétur Ævarsson átti. Eins og stuðningsmenn Þórs syngja yfirleitt um Jóhann, 'Jóhann skorar alltaf mörk'. Það virðast vera orð að sönnu.


Athugasemdir
banner
banner
banner