Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 10. júlí 2021 20:21
Victor Pálsson
Real búið að finna nýjan fyrirliða
Ramos er farinn.
Ramos er farinn.
Mynd: Getty Images
Eins og flestir vita hefur Sergio Ramos yfirgefið lið Real Madrid eftir margra ára dvöl hjá félaginu.

Ramos er genginn í raðir Paris Saint-Germain en hann kemur þangað á frjálsri sölu eftir að samningur hans rann út.

Ramos var lengi með fyrirliðabandið hjá Real en nú er búið að staðfest að Marcelo mun taka við af honum.

Þessi 33 ára gamli Brasilíumaður mun nú bera fyrirliðaband Real en hann fer að hefja sitt 16. tímabil með félaginu.

Ramos spilaði með Real í heil 16 ár og verður hans sárt saknað í hjarta varnarinnar á Santiago Bernabeu.
Athugasemdir
banner
banner
banner